Innlent

„Skrímsla­deildin“ hafi skorið upp her­ör gegn mót­fram­bjóð­endum Katrínar

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Pistill Steinunnar Ólínu hefur farið eins og eldur um sinu um samfélagsmiðla.
Pistill Steinunnar Ólínu hefur farið eins og eldur um sinu um samfélagsmiðla. Vísir/Samsett

Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir forsetaframbjóðandi skrifaði harðorða færslu á síðu sína á Facebook í dag þar sem hún skaut föstum skotum á svokallaða „áróðursmaskínu Íslands“ og það sem hún kallar „skrímsladeildina.“ Hún fer einnig ófögrum orðum um umfjöllun Stefáns Einars Stefánssonar, blaðamanns Morgunblaðsins, í aðdraganda forsetakosninganna.

Í færslunni sakar hún Stefán og „yfirmann áróðursmaskínunnar“ Friðjón Friðjónsson um að hafa skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Jakobsdóttur.

„Þegar talað er um skrímsladeildina í íslensku samfélagi er talað um það fjölmarga fólk sem tekur að sér óþrifaverk fyrir þá sem eiga og ráða. Þetta eru einfaldlega áróðursmeistarar, þeirra sem eiga og ráða. Þetta er fólk sem vílar ekki fyrir sér að níða skóinn af öðru fólki, að gera aðra tortryggilega og slá rýrð á fólk, málstaði og málefni,“ skrifar Steinunn.

Hún segir viðtal Stefáns við Baldur Þórhallsson forsetaframbjóðanda hafa verið „frámunalega ógeðfellt og dónalegt“ og segir að Stefán sé nú að reyna að gera kosningastjóra Höllu Hrundar tortryggilega „fyrir það eitt að hafa unnið fyrir Orkustofnun og þegið fyrir það laun!“

Stefán svarar fyrir sig

Gunnar Smári Egilsson, einn stofnenda Sósíalistaflokksins, tekur undir með Steinunni Ólínu og segir frábært hjá henni að „draga fram viðurstyggð skrímsladeildar Valhallar.“

„Það er skömm íslensks samfélags að þetta ofbeldisfólk hafi verið látið óáreitt á skólalóðinni, komist upp með einelti og níðinskap í skjóli ótta almennings við að verða fyrir því sama. Þess vegna er hugrekki Steinunnar mikilvægt. Þessu mun ekki linna fyrr en við stöndum öll upp og höfnum því að slúðurberar á launum auðfólks fái að stjórna því hvað er rætt á Íslandi og hverjir fái hér framgang,“ skrifar hann við færsluna.

Stefán Einar Stefánsson svaraði fyrir sig í athugasemd við færslu Gunnars Smára. Hann gefur lítið fyrir málflutning þeirra og segir hann Gunnar meðal annars skorta alla sómakennd. Stefán sparar ekki orðin.

„Hann og Reynir Traustason hafa níðst á konunni minni á meira en áratug, bara til þess að ná sér niður á mér. Það sýnir hverskonar ógeð þeir eru. Eltihrellar og mannorðsnauðgarar,“ skrifar Stefán. Kona Stefáns er Sara Lind Guðbergsdóttir, sem var settur orkumálastjóri eftir að Halla Hrund Logadóttir tók sér tímabundið leyfi frá störfum vegna forsetaframboðsins. 

„En það góða er að þeir skipta engu máli, hafa fyrir löngu sýnt þjóðinni að þeir eru einskis virði. Við hlæjum alla jafna að þeim þegar þeir fara á stjá. Þeir hafa kannski eitt: skemmtanagildi,“ bætir hann við.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×